Tók gildi: 15. Júlí 2018
Höfnin veitingahús ehf., (einnig vísað til „félagsins,“ „við“ eða „okkar“) rekur vefinn https://hofnin.is (hér eftir nefndur „Vefurinn“). Við tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær upplýsingar sem koma í gegnum vefinn í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.
Vefurinn
Vefurinn er heimasíða félagsins á slóðinni https://hofnin.is
Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings.
Tæknilegar upplýsingar
Notkunargögn eru skráð sjálfkrafa þegar þú heimsækir vefinn okkar (t.d. IP-tala og tölfræðigögn). Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu.
Ábyrgðaraðili
Einstaklingur, lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem ákveður einn eða í samvinnu við aðra tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga. Höfnin veitingahús ehf., er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við vörur og þjónustu félagsins.
Vinnsluaðili
Einstaklingur eða lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem vinnur með persónuupplýsingar á vegum ábyrgðaraðila. Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila sem uppfyllir öll skilyrði) sé um að ræða þjónustuaðila.
Skráður einstaklingur (eða „hinn skráði“)
Einstaklingur sem á í samskiptum við okkur vegna vöru eða þjónustu.
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar í mismunandi tilgangi, meðal annars til að veita umbeðna þjónustu og bæta heimasíðuna og þjónustuna.
Persónu- og samskiptaupplýsingar
Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar svo við getum haft samband við þig og/eða auðkennt þig („hinn skráði“) og veitt umbeðna þjónustu. Þær persónuupplýsingar geta meðal annars verið:
Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefinn okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér tæknilegar upplýsingar varðandi þann búnað sem þú tengist með og hvernig þú ferðast um vefinn. Þessi gögn geta innihaldið IP-tölu, tegund vafra, síðurnar sem þú skoðaðar, tíma og dagsetningu heimsóknar, tíma sem þú varðir á þessum síðum sem og aðrar upplýsingar. Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar. Í flestum tilfellum er slíkum gögnum safnað með því að nota vafrakökur. Sjá nánari upplýsingar í vafrakökustefnu.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu. Vafrakökur geta geymt upplýsingar um tölfræði og stillingar notanda svo dæmi sé tekið, en geyma ekki persónuupplýsingar eins og nafn, kennitölu, netfang eða símanúmer. Dæmi um vafrakökur sem við notum:
Í samræmi við gildandi lög óskum við eftir leyfi frá þér til að nota vafrakökur. Við gerum þér einnig auðvelt að skipta um skoðun hvenær sem er, með aðgengi að friðhelgisstillingum. Þar getur þú slökkt á þeim vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar til að vefurinn virki eðlilega. Þú getur líka slökkt á öllum kökum með því að breyta vafrastillingum þínum. Við bendum á að ef þú slekkur á öllum vafrakökum getur það komið niður á virkni vefsins.
Við notum upplýsingar þínar með ýmsum hætti meðal annars í eftirfarandi tilgangi:
Við söfnum og vinnum persónuupplýsingar í samræmi við eftirfarandi heimildir:
Við geymum gögn eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma sbr. reglugerð um rafræna reikninga og bókhaldslög.
Félagið kann að miðla persónuupplýsingum til eftirfarandi aðila:
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga og notum til þess viðurkenndar aðferðir. Þrátt fyrir það er mikilvægt að vita að engin aðferð við að senda gögn um Internetið eða aðferð við rafræna geymslu er 100% örugg. Dæmi um öryggisráðstafanir sem við notum eru aðgangsstýringar í kerfum félagsins og dulkóðuð samskipti á milli notenda og vefs með SSL skilríki.
Þú nýtur ýmiskonar réttinda samkvæmt lögum í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga, þó með nokkrum takmörkunum og undantekningum í gildandi lögum og reglum. Réttindi þín eru meðal annars eftirfarandi:
Til að fyrirbyggja að rétturinn hér að ofan verði misnotaður, áskiljum við okkur rétt til að fara fram á að þú sýnir fram á auðkenni áður en erindið er afgreitt. Ef þú vilt nýta þér ofangreindan rétt, þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á [email protected]
Vefurinn okkar kann að innihalda vísanir í og frá vefsíðum samstarfsaðila og annarra þriðju aðila. Vinsamlegast athugið að um þær vefsíður gilda aðrar persónuverndarreglur sem við hvorki höfum stjórn á né berum ábyrgð á. Við hvetjum þig því til að kynna þér þær reglur vandlega áður en þú sendir persónuupplýsingar í gegnum þær vefsíður.
Við skráum engar persónuupplýsingar um börn yngri en 18 ára.
Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa, þá vinsamlegast hafðu samband á [email protected]
Höfnin Restaurant
Geirsgötu 7c, Reykjavík
[email protected]
Sími: 511-2300
Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á hofnin.is
• CookieConsent
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.